
Harpa Snjólaug Lúthersdóttir
Eigandi VATNSLITIR.is
UM Mig
Ég hef alltaf verið mjög skapandi og haft gaman af allskyns föndri. Byrjaði upphaflega á að stofna homemade.is sem var með áherslu á pappírsföndur og albúmagerð. Allt hefur sín tímabil, skrapp tíminn er að mestu liðinn þó einhverjir séu þar enn. En þegar maður er í rekstri þarf maður að fylgja trendum hverju sinni og ekki verra að nýja trendið sé mitt helsta áhugamál. Með þessari verslun langar mig að auka við það úrval sem í boði er á Íslandi og auðvelda landsbyggðinni að nálgast vatnslitavörur. Stefnan er með tímanum að geta boðið uppá stærsta úrval vatnslita á Íslandi.